Það telst frétt að konur eru í formennsku allra nefnda innan stjórnsýslu Hafnarfjarðar. Væri talað um það ef karlar stýrðu öllum nefndum? Held ekki. En þegar betur er rýnt í málið kemur í ljós að nefndarmenn skiptast nokkuð jafnt í heild, eða 57% karlar og 43% konur, sem ætti að vera innan skekkjumarka jafnréttissjónarmiða á báða bóga. Ég get ekki dregið aðra ályktun en þá að val á nefndarmönnum í Firðinum, svo og formönnum nefnda, hljóti að fara eftir einstaklingsbundnum hæfileikum, og er það vel. Hafnfirðingar rokka, enda er hún amma mín og nafna alin upp í Hafnarfirðinum!
Stjórnmál og samfélag | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Horfði með öðru auganu á Spike Lee myndina "The Original Kings of Comedy" og langar að biðja einhvern að horfa á hana fyrir mig og telja hve oft er sagt "motherfucker"?
Kvikmyndir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Athyglisvert framtak þetta að leggjast í kassa með 50 hungruðum rottum til að hvetja fólk til að hætta að henda matarleifum og drasli á götur London. Víða erlendis fyllist allt af maurum ef brauðmylsna dreifist eða af kakkalökkum ef matarleifar eru látnar liggja í ruslinu. Reykjavík er líka full af rottum, þar er staðreynd, og þetta vekur mann til umhugsunar. En hvernig með tyggjóklessurnar á götunum? Hvernig gætum við vakið athygli á því fyrirbæri?
Lífstíll | Breytt 28.8.2006 kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Maður getur ekki annað en verið agndofa yfir því að skýrslu um öryggi og hagkvæmni Kárahnjúka hafi vísvitandi verið leynt fyrir þeim sem þurftu að taka svo mikilvæga ákvörðun! Þvílík spilling að hygla ákveðnum hagsmunum en huga ekki að heildinni og lýðræðislegum réttindum! Krafan um að Alþingi komi tafarlaust saman er réttmæt og nauðsynlegt er að öll atriði málsins verði upplýst hið fyrsta.
Stjórnmál og samfélag | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fróði seldur, Mogginn breytist og nýtt blað í uppsiglingu. Þetta eru spennandi tímar í fjölmiðlun og ég hlakka til að fylgjast með breytingum sem af þessu hljótast! Það er einhver fiðringur í loftinu og frekari sviptingar munu jafnvel eiga sér stað...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er leyndardómsfull keppni. Hvernig fer hún fram? Hverjir gefa sig út fyrir að vera hrútaþuklarar, og hvernig eru þeir þjálfaðir? Þarf sérstaka menntun? Eftir hverju er dæmt? Og kannski síðast en ekki síst: Hvað er þuklað og til hvers?! Hvaðan kemur siðurinn, og er þetta stundað í fleiri löndum en hér? Gætum við kannski sett upp Norðurlandakeppni? Má ég vera með? Meeeee....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég ELSKA slæmar þýðingar! Uppáhaldið mitt er held ég þegar setningin "The problem with him, is that he has a chip on his shoulder" var þýtt í íslensku sjónvarpi sem "hans vandamál er að hann er með franskar á öxlinni": Hér eru nokkur klassísk dæmi, þar sem segja má að meiningin hafi tapast að mestu!!
- "Drop your pants here for best results."
-skilti við fatahreinsun í Tokyo - "We take your bags and send them in all directions."
-skilti á flugvelli einhvers staðar í Skandinavíu - "Ladies may have a fit upstairs."
-frá fatahreinsun í Bangkok - "Please leave your values at the front desk."
-leiðbeiningar á hóteli í París. - "Here speeching American."
-í verslun í Marokkó. - "No smoothen the lion."
-úr dýragarði í Tékklandi. - "The lift is being fixed. During that time we regret that you will be unbearable."
-á hóteli í Búkarest - "Teeth extracted by latest methodists."
-á tannlæknastofu í Hong Kong. - "STOP! Drive Sideways."
-vegaskilti við afrein í Japan. - "Ladies, leave your clothes here and spend the afternoon having a good time."
-stuð á þvottahúsi í Róm. - "If you consider our help impolite, you should see the manager."
-á hóteli í Aþenu. - "Our wines leave you nothing to hope for."
-á vínseðli svissnesks veitingastaðar - "It is forbidden to enter a woman even a foreigner if dressed as a man."
-í bænahúsi í Bangkok - "Fur coats made for ladies from their own skin."
-í búðarglugga feldskera í Svíþjóð - "Specialist in women and other diseases."
-á læknastofu í Róm - "When passenger of foot heave in sight, tootle the horn. Trumpet him melodiously at first, but if he still obstacles your passage then tootle him with vigor."
-bæklingur bílaleigu í Tokyo
Menning og listir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Er ekki frekar undarlegt að amerískur vatnsaflsverkfræðingur tjái sig um Kárahnjúkastífluna og tali um upplýsingaleysi í fjölmiðlum án þess að hún eða fjölmiðlar hafi haft samband við Landsvirkjun? Hér kemur gamli blaðamaðurinn upp í mér, sem þrátt fyrir allt lærði að heyra þarf báðar hliðar mála. Hún hefur mikið til síns máls, sérstaklega er scary að hlusta á hana segja frá því að líklegast sé þetta allt saman verkfræðilegt klúður sem er, eins og sumar framkvæmdir á Íslandi, því marki brennt að anað var út í framkvæmdir án þess að ganga frá öllum smáatriðum varðandi undirbúning verkefnisins. En kom hún hingað sem hlutlaus vísindamaður, eða er hún á vegum einhvers?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spænskir fjölmiðlar fara hamförum í dag vegna leiksins á móti Íslandi. Þetta er sagður vera leiðinlegasti leikur sem sést hefur og leikmenn kallaðir daufir og bjánalegir. Ég er sammála því, en fór samt á völlinn vegna stemmningarinnar. Þjálfari Spánverja fær sína sneið, enda sagt að Spánverjar hefðu átt að vinna leikinn ef þeir hefðu nennt að spila fótbolta. Á www.marca.es hefur verið sett inn skoðanakönnun um hvort þjálfarinn hefði átt að velja aðra menn í liðið á móti Íslandi, en nokkrir spænskir fjölmiðlar gera meira úr því að Raúl hefði verið að spila sinn 100. leik, heldur en að ræða leikinn sjálfan! Best var að þar sem allir þessir Íslendingar virtust heita eitthvað "-son", þá var talað um liðið sem "aburridoson" sem útleggst "leiðinlegurson"!
Íþróttir | Breytt 22.8.2006 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábær grein Stefáns Mána, "Bakkafullur lækur" í Lesbókinni laugardaginn, 12.ág. segir það sem ég vildi segja um Kárahnjúkamálið ákkúrat núna. Greinin lýsir því hvernig fólk er orðið ringlað af því að hlusta á rök með og á móti, en það sem við stöndum í raun frammi fyrir er að þetta er orðið að veruleika, og þjóðin situr og fylgist með hvernig "skaðinn er skeður en samt er hann ekki skeður". Dramatískt, spennandi, ógnvænlegt, sorglegt? En við sofnuðum ekki aðeins á verðinum, heldur sváfum öll yfir okkur.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér svelgdist illilega á ristaða brauðinu í morgun þegar ég sá heilsíðuauglýsingu í Mogganum frá einhverjum hóp kristinna trúfélaga. Yfirskriftin er: "Frjáls... úr viðjum samkynhneigðar". Er ekki í lagi með fólk? Er virkilega til einhver sem heldur því fram að hægt sé að þvinga einstaklinga til að vera annað en þeir sjálfir?! Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta. Kannski væri ráð að draga andann djúpt og líta á þetta sem brandara á þessum annars gleðidegi, þegar ástæða er til að fagna leiðréttingu mikilvægra mannréttinda með samkynhneigðum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Öfgafullir íslamstrúarmenn hafa eyðilagt fyrir mér jákvæðustu hliðar alþjóðavæðingarinnar, sem sneru að því hvað ferðalög voru orðin auðveld. Landamæri eru nú aftur orðin sýnilegri, tortryggni svífur yfir vötnum í ferðalögum og ferðagleðin líður fyrir það. Hvers vegna þessi stefna, að ráðast á samgöngutæki eins og flugvélar og lestar? Heimskulegur óþarfi, eins og allar slíkar deilur eru!
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég vona að læknar séu almennt ekki í svona svakalegri andlegri krísu eins og gefið er til kynna í Bodies, læknaþættinum í Sjónvarpinu. Á milli fúlheita og persónulegra vandamála sem klárlega hafa áhrif á starf þeirra, eru sýndar afar nákvæmar myndir af fæðingum, keisaraskurðum, legkökum, fæðingarvegi, o.s.frv. Það er skemmtilegi hlutinn! Svo er endalaus samkeppni milli illa upplagðra læknanna sem skipta mun meira máli en líf sjúklinga. Hjúkrunarfólk og starfsfólk sjúkrahússins eru sem betur fer í lagi. Ágætis mótvægi við aðra læknaþætti!
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað er málið? Um helgina var höggkeppni og núna er holukeppni?! Er þetta ekki allt golf? Er hægt að vera Íslandsmeistari í höggum en ekki í holum? Hver er eiginlega munurinn? Snýst þetta ekki allt um að slá högg og hitta kúlu í holu?!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hundaeign hefur farið ört vaxandi í Kína og er þar greinilega allt leyfilegt, öfganna á milli, allt frá því að hundar eru klæddir í föt og sendir í sundskóla til þess að allt í lagi sé að berja þá til dauða ef það hentar. Það er hræðilegt til þess að hugsa að engin landslög fjalli um hvernig meðferð dýra skuli háttað í svona stóru landi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reykvíkingar gætu notað stóra sem smáa almenningsgarða borgarinnar miklu betur. Með tónleikum Sigur Rósar á Miklatúni hefur vonandi verið sleginn tónn í þessa átt. Hljómskálagarðurinn er þannig staðsettur, að ef flugvöllurinn skæri ekki helminginn af miðbænum, hefði garðurinn þróast líkt og Hyde Park í London eða Central Park í New York. þá kæmi fólk þangað í hádegishléi frá vinnu og börn kæmu og gæfu öndunum allan hringinn í kringum Tjörnina. Þar er hægt að grilla, leika sér og njóta lífsins. Einhvern tíma stóð til að opna þar kaffihús, hvað ætli hafi orðið um þau plön?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
«
Fyrri síða
|
Næsta síða
»