26.3.2007
TaB, TaB Cola, for beautiful people!
Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að blogga enn einu sinni um markaðssetningu gosdrykkja hér, en þar sem ég var ein af þeim sem hélt framleiðslunni á TaB uppi á sínum tíma á Íslandi fann ég mig knúna til þess. Ég flutti mig síðan yfir í Diet Coke þegar ég bjó á Spáni og erfitt var að fá TaB, auk þess sem það var bragðverra þar. Man einhver eftir sjónvarpsauglýsingunni sem gekk 1982-1983, þegar sykurlausir gosdrykkir voru að ryðja sér til rúms? Lagið var svona: Tab, Tab Cola, what a wonderful dream (eða drink?!), Tab, Tab Cola for beautiful people!, la,la,la...!"
TaB af markaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Menning og listir, Sjónvarp, Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Man eftir þegar Tap kom á markaðinn, rámar í lagið en drekk ekki Tap frekar en aðra sykurlausa drykki.
Sigfús Sigurþórsson., 26.3.2007 kl. 12:25
Diet er eiturog ef eitthvað er verra en sykraðir gosdrykkir. Vatn er best, ódýrast og hollast.
Vilborg Traustadóttir, 26.3.2007 kl. 13:00
Það er ekkert sem jafnast á við vatnið, en svona er maður, þræll markaðarins!
Fararstjórinn, 26.3.2007 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.