21.3.2007
Kúkakaffi
Nú verður maður að fara í Te & kaffi og smakka kaffið sem allir tala um - kúkakaffið. Hreysikettir í Indónesíu velja sér bestu kaffifræin af plöntunum, sem eru ákkúrat á réttum tíma í vexti, og éta þau. Baunin sjálf meltist ekki, svo þeir skila af sér einstakri baun sem fer náttúrulega leið í gegnum hreysiköttinn og er síðan tínd og brennd. Kaffið úr þessum baunum á að vera eitthvað alverlega sérstakt. Bollin kostar 600 krónur og ágóðinn rennur til langveikra barna. Ef þetta er ekki lífrænt ræktað, þá veit ég ekki hvað!
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Sjónvarp, Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Er svag fyrir hinum ýmsustu kaffitegundum og verslaði mér t.d apakaffi um daginn... borgaði þrefalt verð fyrir pakkann og komst að því að herlegheitin minntu helst á gulan Braga. Frekar vonsvikinn - Vona að Kúkakaffið reynist skárrra. Maður getur í það minnsta sagt shit með góðri samvisku ef bragðast illa.
Þorsteinn Gunnarsson, 22.3.2007 kl. 03:15
600 krónur fyrir skitinn kaffibolla ..? Jú jú, úr því að málefnið er gott.
Berglind Steinsdóttir, 23.3.2007 kl. 22:27
Það er veruleg skítalykt af þessu máli.
Björn Heiðdal, 24.3.2007 kl. 04:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.