28.2.2007
Skoppandi líkamspartar og spiktutlur
Þetta gæti orðið grafískt og líka ákaflega vandræðalegt. Ímyndið ykkur hressilegan tröpputíma. Spinning með hraðri tónlist. Brjóst af öllum stærðum og gerðum að hristast í allar áttir, teygð og toguð. Pungar skutlast upp og niður, svitastorknir og klepraðir. Fitukeppir og spiktutlur fá alla athyglina. Nei, þá vil ég heldur þurfa að gangast undir tískuna í líkamsræktarsalnum. Ég verð að játa að ég sé ekkert eftirsóknarvert við nakið fólk saman í líkamsrækt. Kannski er ég bara svona púkó?
Mikill áhugi á líkamsrækt fyrir nakta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Matur og drykkur, Tónlist, Vísindi og fræði, Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:52 | Facebook
Athugasemdir
fjandakornið.... mér finnst þetta nú hálf sjobbí.
Auk þess held ég að flestar konur kjósi góðan sporthaldara...... annað er bara ávísun á kjaftshögg
Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 1.3.2007 kl. 00:05
Alveg er það með eindæmum hvað fólki dettur í hug, en allt er gert til að vekja á sér athygli og peninga, fáum bara bænurnar til abanna að þetta komi hingað.
Kv. SigfúsSig.
Sigfús Sigurþórsson., 1.3.2007 kl. 08:31
Ég ímyndaði mér tröpputímann.....
og ég er enn að hlægja.
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 23:08
Þvílíkt ógeð en rosa væri það súrrealiskt að fara í einn svona tíma en um leið yrði maður eflaust afhuga kynlífi það sem eftir er...
SM, 2.3.2007 kl. 19:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.