Skoppandi líkamspartar og spiktutlur

Þetta gæti orðið grafískt og líka ákaflega vandræðalegt. Ímyndið ykkur hressilegan tröpputíma. Spinning með hraðri tónlist. Brjóst af öllum stærðum og gerðum að hristast í allar áttir, teygð og toguð. Pungar skutlast upp og niður, svitastorknir og klepraðir. Fitukeppir og spiktutlur fá alla athyglina. Nei, þá vil ég heldur þurfa að gangast undir tískuna í líkamsræktarsalnum. Ég verð að játa að ég sé ekkert eftirsóknarvert við nakið fólk saman í líkamsrækt. Kannski er ég bara svona púkó?
mbl.is Mikill áhugi á líkamsrækt fyrir nakta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Dagmar Magnúsdóttir

fjandakornið.... mér finnst þetta nú hálf sjobbí.

Auk þess held ég að flestar konur kjósi góðan sporthaldara...... annað er bara ávísun á kjaftshögg

Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 1.3.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Alveg er það með eindæmum hvað fólki dettur í hug, en allt er gert til að vekja á sér athygli og peninga, fáum bara bænurnar til abanna að þetta komi hingað.

Kv. SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 1.3.2007 kl. 08:31

3 identicon

Ég ímyndaði mér tröpputímann.....

og ég er enn að hlægja.

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 23:08

4 Smámynd: Sylvía

Þvílíkt ógeð en rosa væri það súrrealiskt að fara í einn svona tíma en um leið yrði maður eflaust afhuga kynlífi það sem eftir er...

Sylvía , 2.3.2007 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband