23.6.2006
KR-ingar, krefjist heimaleikja!
Í ljósi nýlegrar fréttar um að betra gengi íþróttaliða á heimavelli kunni að mega rekja til aukins testósterónflæðis leikmanna og frumhvatar þeirra til að verja yfirráðasvæði sitt, leiðir mig bara til einnar niðurstöðu: Ekki fleiri útileiki fyrir KR í sumar! (Allavega ekki eftir Grindavík.) Það verður líka enn skemmtilegra fyrir okkur stelpurnar að mæta á heimavöllinn og fíla þetta brjálaða hormónaflæði þarna niðri á grasinu, yes, yes, yes!!
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:38 | Facebook
Athugasemdir
Já þetta er kannksi eina leiðin til að KR ríkasta knattspyrnufélagið á Íslandi eigi séns á að landa titlinum aftur,að allir þeirra leikir fari bara fram í Frostaskjóli.
Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 23.6.2006 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.