Í göngutúr með ruslið

Ég hef verið að reyna að bæta mig í að fara með fernur, pappaílát og blöð í endurvinnsluna og hefur orðið vel ágengt síðan gámarnir komu hingað í hverfið. Um daginn höfðu safnast saman pappaílát í kassa og blöð í poka, og ákvað ég að taka það með mér þar sem ég var á leiðinni út í búð og skila því í gáminn. Þetta var um það leyti dags sem fólk er að koma úr vinnu og fara í búðir og margt fólk á ferli á Hofsvallagötunni. En það átti ekkert að líta illa út að vera úti að ganga með ruslið undir hendinni, því ég stefndi á gáminn. Þangað til ég komst að því að gámurinn var FARINN! Þá var ekkert um neitt annað að ræða en snúa við og fara í Melabúðina með ruslið í poka, eins og ég hefði skroppið með það í skemmtigöngu. Mjög lekkert. Hvert eru gámarnir farnir? Vilji minn til að safna fernum og öðru slíku er eiginlega gufaður upp og nágrannarnir halda að ég sé klikkuð. Og ég hlýt að spyrja mig hve mikils virði það er að ég taki þátt í endurvinnslunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Don't give up... you still have us.....  dugleg ertu kæra vinkona.  Á okkar heimili er margra ára þjálfun og þetta er bara ekkert mál; þarfnast þó nokkurrar þjálfunar.

Laulau (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 21:37

2 Smámynd: Fararstjórinn

Gámarnir eru fundnir! Þeir eru komnir á sérsniðið plan við Vesturbæjarlaugina. Ég reyni að peppa mig upp í þetta áfram. Þá er bara að virkja heimilisfólk með!

Fararstjórinn, 4.1.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband