Er þetta merki um fullorðnun?

Ég hef aldrei komist upp á lag með að drekka mikið kaffi. Fannst það bara vont á bragðið og hélt mig við dæet kók eða aðra kalda drykki. Ég byrjaði að smakka kaffi um þrítugt þegar ég vann á Spáni og fannst ágætt að fá einn sterkan eftir kvöldmat, enda var kaffið þar gott, og jafnaðist ekkert á við einn Café cortado eða jafnvel Tía María kaffi. Svo þegar ég vann í Portúgal komst ég virkilega að því hvað kaffi getur verið gott. Á vinnustöðum hér heima fór á sama tíma að bera á "alvöru" kaffivélum og maður gat fengið "cortado" (hér á landi kallaður "macchiato" uppá ítalskan máta) eða cappuccino á fundum í staðinn fyrir afrennslið sem áður tíðkaðist. Núna hef ég verið á tveimur vinnustöðum þar sem eru góðar kaffivélar og ég er barasta farin að fá mér kaffi á hverjum degi! Það er ennþá gos á morgnana eins og unglingarnir, en svo allt í einu langar mig bara hreinlega í kaffibolla. Skrýtið. Ætli þetta sé eins og með ólífur, avocado, gin og fleira, sem maður "lærir" að þykja gott með aldrinum? En semsagt, ég leyfi mér að halda því blákalt fram að kaffinotkun mín tengist því að ég sé orðin fullorðin, svo nú má fara að taka mig alvarlega hvað á hverju.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert greinilega orðin fullorðin Alla. Kemur fólk ekki líka öðruvísi fram við þig núna þegar þú hefur vitkast og þroskast. Ég er nýfarin að borða ólívur, finnst ég rosalega hipp og kúl, bíð bara eftir þroskast yfir í ginið. Ægir er kominn þangað enda er hann svo mikið eldri en ég

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 11:35

2 identicon

Er þetta ekki bara vottur af sveigjanleika og aðlögun bragðlaukana frekar en merki um að eldast eða þroskast? Sjálfur hef ég aldrei drukkið kaffi en finnst kaffiilmur góður. Reyki ekki og hætti að þamba kóladrykki fyrir 8 árum síðan. Þetta er kannski ákveðin aðlögunartími sem er að springa út eins og með góð rauðvín. Lífið er það stutt að við megum heldur ekki loka á allt sem er sagt óhollt en er samt gott

Gangi þér vel með kaffið mín kæra

Róbert

Róbert Schmidt (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 17:33

3 identicon

Alla mín, velkomin í kaffimenninguna,

Heddý frænka

Heddý (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 14:51

4 identicon

Mér finnst það vera merki um fullorðnun þegar maður bloggar ekki oftar en einu sinni í mánuði........

Laulau (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband